Ađalvalmynd

Auglýsing

ÉG

Ţegar orđ fá vćngi...

Eina vantrúin sem ber ađ óttast..

.. er vantrú ţín á ţér!

Skemmtilegar síđur

halló hallóHrund Erlingsdóttir

er komin međ nýja bloggsíđu sem verđur auglýst síđar ;)... Nánar

Já ţú ert ađ sjá rétt:)Hrund Erlingsdóttir

Jæja já, hvar var ég?
Jarðskjálftinn einmitt hehe:)

Ég var meira að segja búin að gleyma aðgangsorðinu mínu hingað inn það er svo langt síðan ég skrifaði síðast!

Annars hefur mjög mjög mikið á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast (undarlegt ekki satt??) :)

Ég var að vinna á Sambýlinu Vallholti 12-14 í sumar og líkaði það bara svona líka vel. Ég veit ekki hvað það er við það að vinna með fötluðum sem er svona frábært. Ætli það sé ekki bara þakklætið og ánægjan sem maður uppsker fyrir vinnuna sína...
Nema hvað, eins og þið vitið flest þá eignaðist ég "son" þann 19. júlí, eða sko Thea frænka eignaðist strák og þar sem hann á ekki pabba í bili þá pantaði ég að fá að vera pabbinn þar til að annar slíkur kemur inn í myndina:)
Annars gerðist nú ekki margt annað nema það að ég skreppti mér til Köben með móður minni í ágúst. Elsku yndislega Hrefna amma mín fór heim til Guðs og afa í ágúst, leiðinlegt fyrir okkur sem erum eftir en gott fyrir elsku dúlluna mína sem var orðin svo veik.
Næst byrjaði svo skólinn eins og venjulega í lok ágúst - 4. bekkur ó já:)
Síðan fór ég til Toronto í viku í lok september á skóla og conference hjá TACF, ótrúlega gaman, þ.e.a.s. þar til að maður þarf að fara að vinna upp það sem maður missti úr hehe. Það tók nú reyndar sem betur fer ekkert svo langan tíma!

Skóli, skóli, skóli - 5. október: Ég eignaðist 7. systkinabarnið mitt hana Erlu Rakel Björnsdóttur (dóttir Eyglóar systur) þvílíkt sæt lítil prinsessa sem ég elska mjög mikið!

Ég hef stundum velt því fyrir mér, eins rosalega mikið og ég elska litlu systrabörnin mín, hvernig er þá að eiga sitt eigið barn, ætli maður springi ekki af elsku og væntumþykju? Ég meina mér gæti varla þótt vænna um systrakrílin mín:)

En að lífinu mínu þá er ég bara að skríða inn í prófa"törn" sem eru jafnframt síðustu jólaprófin mín í þeim yndislega skóla Kvennó.. já konan er bara að eldast og að verða stúdent í vor!
Annars óska ég ykkur bara gleðilegra jóla þar til næst.. ég gef mér hálft ár þar til næsta færsla kemur hehe, miðað við fyrri venjur:)

-Hrund, sem verður bráðum langamma án þess að vita af því...

Jćja pćja..Hrund Erlingsdóttir

það mætti halda að jörðin væri með hiksta eða fjörfisk eða e-ð..
þetta er samt smá fjör þó að stóri skjálftinn hafi ekki vakið hjá mér mikla lukku!
Úff púff það var nú meiri dagurinn, segi frá því seinna.. er nokkurnveginn búinn að ná mér eftir það hehe:)

Ætla að fara að taka til í herberginu mínu og raða dóti á sinn stað aftur ;)

Súper fjör á Suðurlandi....

Hrund > marghrista..

*Andvarp*Hrund Erlingsdóttir

*úff, púff, dæs og allt hitt*

8 klst - SUMARFRÍ!!

Hrund > sem er að koksa á prófum...

Úff...Hrund Erlingsdóttir

ég veit ekki hvað er málið með mig og svefnvenjur mínar þegar ég er í prófum!

Sama hversu þreytt ég verð heldur þessi leiðinda prófskrekkur mér alltaf vakandi fram eftir öllu..
ég ákvað þá að kíkja í tölvuna og tékka hvort ég gæti ekki lært e-ð - ég hreinlega nenni ekki meira:)

Hlustaði á eitt myndband með lagi sem við sungum í kórnum þegar ég var yngri, það er ekki laust við að ég sakni þess nú bara helling að vera í kór - það gefur manni alveg laumu mjög mikið:D

Hehe, ætla að gera aðra svefntilraun þar sem planið er að rífa sig á lappir eftir tvo og hálfan tíma:S
Veit ekki alveg hvernig það fer haha:)

Heyrumst,

Hrund > ósofna

Já svona er ég....Hrund Erlingsdóttir

....þetta er veröldin mín þessa dagana:)

Ég úti á palli, langt fram á kvöld, að læra í þessari líka kósí birtu!

Yndislegt:)

En allavega ég á 3 próf eftir og það er vika í próflok - ég get ekki beðið!!!

Læt fylgja með mynd áður en ég skýst aftur út:



Já þetta lýsir mér mjög vel þessa dagana.. en ég er einmitt að fara aftur þangað út núna:)

Prófa- og kærleikskveðja,
Hrund > sem kann ekkert í frönsku....

Vorbođinn ljúfi...Hrund Erlingsdóttir

...fuglinn trúr sem fer,
með fjaðrabliki, háa vegaleysu, 
í sumardal að kveða kvæðin þín!

Já það eða bara nemendur Kvennaskólans í Reykjavík á sínum árlega peysufatadegi 3. bekkjar.



Peysufatadagurinn okkar var í gær og mikið OFBOÐSLEGA var gaman!!! Nokkrir nefndu það að þeirra vorborði væri þegar nemendur 3. bekkjar örkuðu um bæinn á peysufötum, m.a. menntamálaráðherra (minnir að það hafi verið hún frekar en Aðalsteinn fyrrv. skólameistari Kvennaskólans) og núverandi skólameistarinn okkar hún Ingibjörg Guðmundsdóttir. Gott að geta komið með vorið til einhvers.

Þetta var samt svolítið fyndið, í þessum fötum, syngjandi þessi lög, dansandi þessa dansa - við þetta fylltist maður af einhverju ægilegu skóla-, lands- og þjóðarstolti hehe..

Við s.s. byrjuðum á því að fara í morgunmat á Hallveigarstöðum í boði ungra Jafnaðarmanna. Svo marseruðum við upp í Menntamálaráðuneyti og dönsuðum og sungum þar fyrir utan. Planið var að marsera með Þorgerði á ríkisstjórnarfund, en svo var hætt við fundinn þannig að ekkert varð úr því.
Þaðan fórum svo svo í Einimel 26 fyrir utan heimili Bessíar Jóhannsdóttur formanns skólaráðs Kvennaskólans (minnir mig að hún sé) allavega er hún fyrrverandi kennarinn hennar mömmu minnar síðan hún var í Kvennó.
Þar kíkti á okkur hópur af leikskólakrökkum sem fengu að sitja inni í hringnum í dönsunum, ég er ekki frá því að þeim hafi bara fundist þetta frekar spennandi:)
Frá Einimel var rúntað um á Setljarnarnesi til að ná upp tímaplaninu, þar sem við vorum á undan áætlun vegna ríkisstjórnarfundarins sem ekkert varð úr ;)
Svo komum við í Ráðhúsið þar sem við gerðum okkur til við að marsera yfir brúna að Iðnó og að skólanum okkar. Það var ekki laust við að þarna færi nokkuð mikið stoltur hópur Kvenskælinga í átt að skólanum sínum!
Þar sungum við og dönsuðum eins og áður fyrir nemendur og kennara skólans. Ég heyrði frá nokkrum kennurum skólans að þetta hafi verið ein flottasta útsetning á dönsum og innkomu og því sem þau hafa séð, enda mjög flink kona sem þjálfaði okkur! Svo skemmdi ekki fyrir að veðrið lék algjörlega við okkur, sól og hæfilega hlýtt.. Venjulega hefur þessi dagur verið dæmdur til að rigna á. Já svona er þetta þegar 3.FS dansar, þá gerast góðir hlutir haha:)
Þaðan var svo marserað með hraði út á Ingólfstorg þar sem beið okkar vænn áhorfendahópur. Þar var ekkert smá gaman að dansa þar sem við höfðum allt það pláss sem við þurftum. - Heppnaðist ekkert smá vel! Hittum nokkra "heimilismenn" á torginu sem fullvissuðu okkur um að við yrðum nú að dansa með og passa okkur að syngja og svona.. skemmtilegir kallar, ég verð að segja það:)
Allavega svo héldum við á Grund þar sem við marseruðum um allar deildir og sungum og trölluðum á leiðinni, enduðum svo úti í garði á því að dansa nokkra dansa. ÞAÐ var gaman maður.. gamla fólkið fílaði okkur í tætlur, hehe.. Sungu og dilluðu sér með - algjörar dúllur!!
Svo fórum við á Hrafnistu þar sem gert var stutt stopp þar sem harmonikkuleikarinn þurfti að fara annað.
En fólkið þar var líka afar ánægt með hópinn!
Svo fórum við bara uppí skóla í myndatöku og vöfflukaffi í boði skólans.

Þessi dagur var bara algjörlega ÓGLEYMANLEGUR! Hrikalega gaman og skemmtilegt og æðislegt og frábært... ég gæti talið upp öll falleg og góð lýsingarorð, en ég er að spara plássið (eða er búin að nota nógan orðafjölda til að lýsa þessum degi) allavega þá var þetta bara yndislegt frá a-ö:)

Svo hittumst við nokkur heima hjá bekkjarsystur minni og horfðum m.a. á fréttir þar sem við fengum ca. 30 sekúndna umfjöllun. En við komumst í fréttirnar og það er það sem gildir!
Kl. 19:30 var að lokum haldið í Félagsheimili Seltjarnarness þar sem við fengum ítalskt hlaðborð og svo var ball fram eftir kvöldi.
Ég var reyndar fyrst til að yfirgefa samkvæmið, þar sem ég hafði fleiri plön fyrir kvöldið, en ég skemmti mér konunglega alls staðar þar sem ég kom við þetta kvöld!

Læt fylgja með tvær myndir síðan í gær!


Hér er ég í búningnum hennar Hrefnu ömmu minnar:)
Íris systir kom á Grund og tók "nokkrar" myndir.. (hehe 93 myndir á ca. 15-20 mín)


Svo er hér ein hópmynd af okkur fyrir framan skólann. (Fékk hana hjá Kristínu Margréti bekkjarsystur minni sem gerði hana svona gamaldags og skemmtilega)

Já þetta var sko frábær dagur..

Hrund > þjóðlega hehe:)

Takk fyrir ţađ já..Hrund Erlingsdóttir

 Ég er búin að heyra of oft otað að mér undanfarið “já þú ert svona mikill ofurbloggari!” og ég skynja yfirleitt mikla kaldhæðni í þessum orðum. Ég veit bara ekki hvaðan á mig stendur veðrið. (Segir maður þetta ekki svona?)  

Allavega, eftir síðustu svona athugasemd ákvað ég að láta slag standa og sanna fyrir fólki að ég geti verið ofurbloggari – ja kannski að undanskildu forskeytinu ofur- í þessu samhengi:) Ég get allavega talist bloggari? Ok?
 

En frá því að ég bloggaði síðast (þann 14. febrúar 2008) hefur eiginlega svo of margt á daga mína drifið að ekki tekur því að telja það upp hérna nema kannski það allra, allra helsta.
 

  Svo bara meiri skóli og við vitum nú hvernig það er:)

Ég var nú reyndar bara að byrja í dag. Það fór nú betur en á horfðist að vakna svona snemma.. veit ekki hvernig verður með að vakna í fyrramálið þar sem það verður einum klukkutímanum fyrr en í morgun og mööörgum klukkutímum fyrr en undanfarna daga;) 
 

Já ég gleymi einu, ALLTAF fyrst með fréttirnar (not J).
Ég er að verða móðursystir í 7. skipti – beat that!
Eygló mín og Bjössi hennar eru að fara að eignast lítið kríli 27. september og ég hlakka SVOOO mikið til. Ég reyndar held því statt og stöðugt fram að þetta sé stelpa og ég viti hvernig hún líti út. Mig dreymdi hana nefnilega og það getur ekki annað verið en að hún líti þannig út hehe.. eða e-ð:) við sjáum nú bara til! 

En allavega, ÆÐISLEGA MIKIÐ TIL HAMINGJU dúllurúllurnar mínar og eigið góðan tíma fram í september og reynið að sofa eins oft út og þið getið þangað til hehe
J þið vitið hvers vegna!
 

Ég get svo svarið það það eru allir óléttir í kringum mig eða að tala um börn eða e-ð. Ef það er ekki einhver sem ég þekki, þá eru það gamlar konur í strætó. Og ef það eru ekki gamlar konur í strætó þá eru það sýnikennslur í líffræði. -  þetta er ótrúlegt, sækir að úr öllum áttum!

I rest my case;)
 

Við heyrumst bara síðar..
 

Hrund > “ofur”bloggari...

Herfa, herfa, láttu ţig hverfa! haha:)Hrund Erlingsdóttir

Jæja, ég er svona semí búin að jafna mig síðan síðast....

fékk bara algjört ógeð og nóg af öllu!

En er örlítið hressari núna, þar sem sér fyrir endann á þessu endalausa skóladóti í bili.

Ætlaði bara að láta vita að ég er ekki fjúkandi ill lengur, er samt búin að sjá að það er meira en nóg að gera hjá öllum, en eftir mánudaginn verður smá afslöppun:)

-TJARNARDAGAR- jibbíí!

Ég skráði mig, og náði að plata Unni með mér, á söngnámskeið seinni daginn, þar sem Hera Björk er að kenna! - BARA SNILLD!

Hehe, ekki það að ég sé hörku söngkona - þvert á móti - mig langar bara að vita hvort HB sé jafn skemmtileg og allir segja að hún sé.....
allavega hlakka ég til!
Svo er að fara að vera forval fyrir valið fyrir næsta ár... verður spennandi að fara á markaðstorgið og skoða e-ð skemmtilegt!


Well, heyrumst...
Ætla að gera einhverjar fleiri af þessum 15x1.000.000 skýrslum sem ég þarf að ljúka fyrir mánudaginn!

ciao,
Hrund > skólafíll

Eins og ađ trođa trékassa inn um bréfalúgu...Hrund Erlingsdóttir

... sumir bara passa ekki!

Ég held stundum að ég sé á barmi þess að tapa mér.. bara í eitthvað, eitthvað allt annað en ég er að gera!


T.d. núna - Algjör yfirþyrmandi löngun til að hætta í skóla!!!!

Gæti vel hugsað mér að mæta ekki aftur í Fríkirkjuveg 9 - 

væri meira að segja nokkuð sátt við það..

er komin með ALGJÖRT ógeð á eeendalausum verkefnum sem liggja á manni eins og mara endalaust! Skila þessu, vinna þetta, semja skýrslu, taka viðtal, gera rannsókn, lesa bækur, hundrað próf, allt í á sama tíma og ekki tími til að anda á meðan.....


Eitt er víst, ekki fræðilegur séns að ég fari í háskóla beint eftir menntó - ef andleg heilsa leyfir mér þá að klára menntaskólann yfir höfuð........


Er alls ekkert viss um það.


En eitt er víst - mér er illa við stjórnmál!


Stjórnmálafræðiverkefni sökka.....


Hrund > kvartbelgurinn sem VARÐ að pústa!

Síđa 1 af 8

Teljari

Könnun

Ég, ţú eđa allir hinir?

Leikur dagsins

Gagnasafn